Gisting með eldhúsaðstöðu -
Accommodation.
Uppábúin rúm sé þess óskað -
Made up beds on request.
Bergistangi 524 - Norðurfirði á Ströndum.
Sími: 839 9994
Vefpóstur: info@bergistangi.is
Vefsíðugerð hýsing og umsjón: Bemar tækniþjónusta
GISTIHEIMILIÐ BERGISTANGI
Boðin er gisting í tveimur húsum; Annars vegar tvö rúmgóð herbergi á jarðhæð í íbúðarhúsi eigenda með þremur rúmstæðum hvort. Sameiginlegur inngangur er með íbúð eigenda á annarri hæð. Að öðru leyti aðskilið . Sameiginlegt fyrir þessi tvö hergbergi, snyrting, lítið eldhús. Sjónvarp er í báðum herbergjum.
Hins vegar er gisting í frystihúsi, sem var byggt í tengslum við sláturhús á staðnum, og var notað sem slíkt í þrjátíuár. Tímarnir breytast og svo er komið árið 1992, að ekki er lengur þörf fyrir frystihús. Fyrir nokkrum árum réðust eigendur hússins, í að breyta því í gistihús, og hefur það verið notað. Í húsinu eru þrjú herbergi, (klefar) notuð fyrir gistingu. Kojur eru herbergjunum, sem eru misstór, átta kojur í stærsta herberginu og sex í hvoru hinna tveggja, samtals tuttugu. Í kojunum, sem eru á tveimur hæðum, eru góðar dýnur. Handlaugar eru í herbergjunum. Snyrting er einnig í húsinu. Rúmgott eldhús er og mjög góð eldunaraðstaða . Sjónvarp er í matsal.
Húsið hefur verið vinsælt fyrir hópa og einstaklingar gista þar líka.
Veitingasala er ekki. Stutt er í þá þjónustu, einnig í verslun og bankaþjónustu.